Leifur útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2021.
Frá útskrift hefur hann starfað hjá Sjúkraþjálfun Íslands í Orkuhúsinu. Hann hefur einnig starfað með íþróttafélögum og starfar nú einnig sem sjúkraþjálfari yngri landsliða KSÍ.
Áhugasvið Leifs eru almenn sjúkraþjálfun, endurhæfing eftir aðgerðir og íþróttasjúkraþjálfun.
Helga útskrifaðist frá University College Nordjylland í Danmörku árið 2021.
Frá útskrift hefur hún starfað hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur og Eflingu sjúkraþjálfun á Akureyri. Auk þess hefur Helga séð um sjúkraþjálfun hjá mörgum fótboltaliðum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og fyrir norðan.
Helga tekur að sér alla sjúkraþjálfun en hennar helstu áhugasvið eru barna- og unglingasjúkraþjálfun.
Hún hefur góða reynslu í meðhöndlun á íþrótta- og álagsmeiðslum unglinga ásamt fyrirbyggjandi æfingarmeðferðum.
Frá útskrift hefur hún starfað sem sjúkraþjálfari á Heilsustofnun NLFÍ í þverfaglegu færniteymi og býr því að dýrmætri reynslu endurhæfingar einstaklinga með taugasjúkdóma, gigtarsjúkdóma og bæklunarsjúkraþjálfun í kjölfar slyss og/eða aðgerða á stoðkerfi.
Elma hefur verið sjúkraþjálfari mfl. kvk. Selfoss í knattspyrnu og mfl. kk. Hamar í körfubolta.
Áhugasvið Elmu eru taugasjúkraþjálfun einstaklinga með taugasjúkdóma á borð við Parkinsons og MS, bæklunarvandamál og endurhæfing eftir slys eða heilsubrest.