Sjúkraþjálfun Vesturlands

Sjúkraþjálfun Vesturlands

Einstaklingsmiðuð meðferð byggð á gagnreyndum meðferðum, okkar reynslu og þínum þörfum.


Um okkur

Sjúkraþjálfun Vesturlands er sjúkraþjálfunarstofa á Akranesi sem hóf störf í september 2025. Á stofunni starfa þrír sjúkraþjálfarar með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu.

Markmið okkar er að veita einstaklingsmiðaða meðferð byggða á vísindalegum grunni. Aðstaða, aðgengi og búnaður á stöðinni er til fyrirmyndar. Hóptímasalur er til staðar og hægt að leigja hann fyrir ýmis tilefni.

Starfsfólk

Leifur Auðunsson

Sjúkraþjálfari B.Sc., M.Sc.

Leifur útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2021. Hann hefur starfað hjá Sjúkraþjálfun Íslands í Orkuhúsinu og er sjúkraþjálfari yngri landsliða KSÍ. Áhugasvið Leifs eru almenn sjúkraþjálfun, endurhæfing eftir aðgerðir og íþróttameiðsli.

Helga Eir Sigðurðardóttir

Sjúkraþjálfari B.Sc., M.Sc.

Helga útskrifaðist frá University College Nordjylland í Danmörku árið 2021. Hún hefur starfað hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur og Eflingu á Akureyri, auk þess sem hún hefur unnið með íþróttaliðum. Áhugasvið Helgu eru barna- og unglingasjúkraþjálfun, íþróttameiðsli og fyrirbyggjandi æfingameðferð.

Sigríður Elma Svanbjargardóttir

Sjúkraþjálfari B.Sc., M.Sc.

Elma útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2023. Hún hefur starfað á Heilsustofnun NLFÍ í þverfaglegu teymi og hefur verið sjúkraþjálfari mfl. kvk. Selfoss í knattspyrnu og mfl. kk. Hamar í körfubolta.Áhugasvið Elmu eru taugasjúkraþjálfun, bæklunarvandamál og endurhæfing eftir slys og aðgerðir.

Staðsetning

Sjúkraþjálfun Vesturlands er staðsett á Garðabraut 2a, 300 Akranesi. 

Gengið er inn að vestanverðu. 

Opnunartími: Mán-fös 8:00-16:00

Hafa samband

Sími: 530-0010

Netfang: sjukravest@sjukravest.is

Heimilisfang: Garðabraut 2a, 300 Akranes

Opnunartími: Mán–fös 8:00–16:00

Sjúkraþjálfun Vesturlands er í samningi við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ).

Hafðu samband við okkur til að panta tíma eða fá nánari upplýsingar. Við svörum eins fljótt og auðið er.