Við erum alltaf að bæta okkur og læra eitthvað nýtt. Helga Eir sótti nýlega námskeið í barnasjúkraþjálfun með áherslu á bæklun og stoðkerfi. Námskeiðið var haldið í Reykjavík dagana 18.–21. mars. Námskeiðið styrkir þekkingu Helgu á meðhöndlun barna og unglinga — sem er eitt af hennar helstu áhugasviðum.